Kæri íþróttakennari,
Við bjóðum þér til þátttöku í rannsókn sem skoðar meðal annars
upplifun, áskoranir og viðhorf íþróttakennara til starfsins með áherslu á starfsaðstæður, virði skólaíþrótta og hlutverk. Við áætlum að það taki um 10 mínútur að svara öllum spurningunum. Framkvæmd rannsóknarinnar á Íslandi er í höndum dr. Inga Þórs Einarssonar og dr. Sveins Þorgeirssonar í samstarfi við tyrkneska rannsakendur, þau dr. Derya Sakalli og dr. Ender Şenel.
Þessi rannsókn er unnin í vísindalegum tilgangi og þátttaka í henni er alfarið valfrjáls og áhættulaus. Þó að þú samþykkir þátttöku og byrjir á því að svara spurningalistanum, þá getur þú alltaf hætt við þátttöku hvenær sem er án þess að gefa ástæðu. Með því að samþykkja þátttöku gefur þú sjálfviljug/-ur/-t samþykki þitt. Gögnum sem safnað er í þessum spurningalista eru ópersónugreinanleg.
Markmið rannsóknarinnar er að fá innsýn í störf og áskoranir íþróttakennara á Íslandi. Mikill skortur er á rannsóknum á þessu sviði hér á landi og þátttaka þín er því mikilsvert framlag til að bæta úr því. Niðurstöðurnar verða samkeyrðar við þær sem aflað verður í Tyrklandi til að fá samanburð á milli landanna. Gögnin verða vistuð í gagnagrunni QuestionPro og í tölvum rannsakenda sem er í eigu Háskólans í Reykjavík. Gagnaskrár verða varðar með lykilorði. Aðeins þeir rannsakendur sem getið er hér að ofan hafa aðgang að þeim. Gögnum verður eytt þegar vinnu við rannsóknina er lokið.
Notast verður við fjóra þýdda spurningalista sem mæla mismunandi þætti er varða störf íþróttakennara
*Upplifað virði skólaíþróttakennara (Perceived Mattering Questionnaire - Physical Education, PMQ-PE)
*Jaðarsetning og einangrun skólaíþróttakennara (Physical Education Marginalization and Isolation Survey, PE-MAIS)
*Hlutverk, ánægja, skuldbinding, og framtíðaráætlun um starfið (Conley & You, 2009)
*Kennari/þjálfari hlutverka togstreita (Teacher/Coach Role Conflict Scale, T/C RCS)
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi rannsóknina, vinsamlega hafðu samband við ábyrgðarmann rannsóknar hér á landi
dr. Sveinn Þorgeirsson með tölvupósti á sveinntho@ru.is
Kærar fyrirfram þakkir fyrir framlag þitt til vísinda!
Þú getur hafið þátttökuna í rannsókninni með því að veita upplýst samþykki í næsta lið og svara spurningalistunum sem fylgja